149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:18]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir afar góða ræðu þar sem hann nálgast viðfangsefnið á yfirvegaðan hátt og dregur út hið augljósa, alla vega eins og ég sé það. Varðandi umræðuna um fyrirvarana, sem er nú orðin svolítið meginstef hér eftir kvöldverðarhlé, virðast þeir einkum eiga að beinast gagnvart reglugerð 713/2009 sem fjallar um grunnvirki yfir landamæri, sem í daglegu tali eru kölluð sæstrengur hér á Íslandi. Í ræðu sinni 9. apríl sl. segir hæstv. utanríkisráðherra, í fyrri umræðu um þetta, með leyfi forseta:

„Í því sambandi skiptir líka afar miklu máli sameiginlegur skilningur með orkumálastjóra ESB á þeirri sérstöðu sem Ísland nýtur gagnvart sameiginlegum orkumarkaði. Þeir sérfræðingar sem leitað hefur verið til eru líka á einu máli um að sá sameiginlegi skilningur styrki mjög þær forsendur sem við leggjum til grundvallar innleiðingunni. Þótt yfirlýsingin hafi ekki bein lagaleg áhrif hefur hún lagalega þýðingu, enda sýnir hún fram á að samningsaðilar okkar hafa sama skilning og við á þeim forsendum sem við byggjum innleiðinguna á.“

En hverjar eru þessar forsendur sem innleiðingin er byggð á að mati hv. þingmanns?