ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Þetta er akkúrat málið. Þegar búið er að leiða í ljós hverjir hinir lagalegu fyrirvarar eru, en til stendur að setja þá í tveimur frumvörpum til laga — lagabreytingu annars vegar og svo lögum sem liggja fyrir þinginu — að landsrétti. Við innleiðingu gerðarinnar, við innleiðingu tilskipunar nr. 72/2009, ásamt þeim reglugerðum sem fylgja í orkupakkanum, 713 og 714 og 715/2009 við þá innleiðingu, sé ekki fyrirvari í innleiðingunni sjálfri, öðlast þessar reglugerðir lagalegt gildi hér á landi og lúta þjóðarétti, eins og ég skil málið.
Það gerir að verkum að jafnvel þó svo að hér sé ekki sæstrengur, og að fyrirvarinn varði það að Alþingi Íslendinga skuli taka þá ákvörðun, þá skuldbindur Alþingi Íslendinga sig til að fara eftir þessari innleiðingu, þessari ákvörðun, vegna þess að við erum skuldbundin að þjóðarétti. Það er akkúrat það sem málið hverfist um þegar kemur að stjórnarskránni. Það sem stendur til að gera hér verður ekki aftur tekið. En við gætum hins vegar setið uppi með bakreikning fyrir það um langa hríð héðan í frá. Hverjar eru hugleiðingar hv. þingmanns varðandi þessa kenningu mína?