ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Þeirri stöðu sem hv. þingmaður lýsir, varðandi það sem gerist ef sæstrengur verður lagður, var líkt við það í ágætri grein — því miður man ég ekki í svipinn eftir hvern — að taka flöskupúka inn á heimilið og segja sem svo: Það er allt í lagi að hafa þennan púka því að hann er í flösku. Svo var spurt: Til hvers þá að taka púkann inn á heimilið?
En ég held það sé hárrétt, sem hv. þingmaður segir, auðvitað eru verulegar líkur á því að hér kæmi stjórn sem hefði áhuga á sæstreng. Við getum séð fyrir okkur, af umræðum um þetta mál að dæma, hvort ekki væri líklegt að einhverjir þingmenn myndu útskýra fyrir okkur að það væri bara einangrunarhyggja að vilja ekki sæstreng og við þyrftum að selja umhverfisvæna orku til útlanda og taka þátt í að takast á við loftslagsmálin og allt þetta, allir þessa sömu frasar yrðu notaðir. Svo þyrftu kannski einhverjir að vera í málþófi til að reyna að stoppa sæstreng, þótt við séum, sem betur fer, ekki komnir í þá stöðu að þurfa að fara í málþóf um þetta mál vegna þess að rökin eru einfaldlega það mörg og það er margt sem við þurfum að krefjast svara um.
En til viðbótar við þessa hættu, sem hv. þingmaður lýsir, getur hann ekki fallist á það, í ljósi þess sem við höfum rætt um, og m.a. hv. þm. Jón Þór Þorvaldsson fært mjög greinargóð rök fyrir, að það yrði a.m.k. reynt af einhverjum áhugasömum fjárfestum að nýta þá staðreynd að Íslendingar væru búnir að samþykkja þriðja orkupakkann til að knýja á um að ACER, orkumálastofnun Evrópusambandsins, hlutaðist til um að ýta málinu áfram á Íslandi?