ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Mig langar til að spyrja hæstv. forseta fyrir það fyrsta hversu lengi hann hyggist láta fund standa. Í annan stað hvort einhver reki hafi verið gerðar að því sem beðið var um hér áðan og sitjandi forseti sagðist þá ætla að gera, að reyna að hlutast til um að fá stjórnarliða til að koma hingað og svara þeim álitaefnum sem borin hafa verið upp. Vegna þess að það er afar brýnt að ef ekki næst í utanríkisráðherra og hann fenginn til að koma hingað og skýra orð sín, væri afar áhugavert að fá ábyrgðarmenn sem fluttu frumvarpið og þá sem eru í forystusveit ríkisstjórnarflokkanna til að koma hingað og eiga við okkur orðastað. Það skiptir máli hversu lengi fundur stendur vegna þessara álitaefna.