149. löggjafarþing — 110. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:51]
Horfa

Forseti (Willum Þór Þórsson):

Forseti getur svarað fyrirspurn hv. þingmanns um áframhald fundar þannig að forseti hyggst halda fundi áfram enn um sinn. Mælendaskrá er opin en ég get komið þeim skilaboðum áleiðis að óskað sé eftir því að aðrir taki þátt í þessum umræðum. En mælendaskráin er opin, ég ítreka það. (Gripið fram í.)