ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég sé ástæðu til að taka undir þessa áskorun til hæstv. forseta, ekki aðeins vegna þess hversu rýr svör hæstv. utanríkisráðherra voru hér fyrr í kvöld, heldur einnig vegna þess að stjórnarliðar, aðrir talsmenn frumvarpsins, þar með talið hv. formaður utanríkismálanefndar, sem flytur málið, hafa ekki brugðist við einu einasta þeirra fjölmörgu nýju atriða, ekki einni þeirra fjölmörgu spurninga sem vaknað hafa og þeirra stóru álitaefna sem leidd hafa verið í ljós í umræðunni í kvöld, í fyrrakvöld, fyrrinótt, fyrradag og nóttina þar áður. Það hlýtur að vera vilji stjórnarinnar, sem ætlast til þess að hv. alþingismenn samþykki þessa tillögu, séu upplýstir um eðli hennar og bregðist þar af leiðandi við þegar nýjar ábendingar koma fram.