149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[00:05]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Nú skil ég hvers vegna hv. þingmaður lagði fyrr í kvöld svo mikla áherslu á fyrirvarana, það ætti að vera eitthvert hald í þeim, þeir þyrftu að innihalda dagsetningar. Maður getur ekki annað en velt fyrir sér eftir þennan lestur: Hvaða gildi hafa þessir ímynduðu fyrirvarar ef þeir voru ekki einu sinni orðnir hugmynd árið 2017 þegar þetta tók á sig þá mynd sem skal svo innleiðast, verði orkupakki þrjú samþykktur?

Ég fæ ekki betur skilið en svo að ef þingið samþykkir núna þessa þingsályktunartillögu um afléttingu stjórnskipulegs fyrirvara, innleiðingu orkupakka þrjú, taki hann gildi eins og frá honum var gengið 2017 þegar engum hafði dottið í hug, að því virðist nú, að reyna að afvegaleiða umræðuna með einhverju tali um fyrirvara.

Nú skil ég enn þá betur orð Þorsteins Pálssonar, fyrrverandi forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, þegar hann talaði um blekkingar. Hann kallaði fyrirvarana reyndar lofsverðar blekkingar, en hann hefur kannski verið búinn að reiknað þetta út með þeim hætti sem hv. þingmaður hefur gert nú.

Nú skil ég enn betur fræðimennina sem sögðu að fyrirvararnir væru bara til heimabrúks.

Skil ég hv. þingmann rétt, að ef Alþingi samþykkir orkupakka þrjú verði hann bara innleiddur eins og hann var 2017, þegar engum hafði dottið í hug að tala um fyrirvara í þessari ríkisstjórn?