149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[00:20]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Varðandi þessa fyrirvara hafa þeir birst á ýmsum stigum þessarar umræðu, einkum þó í byrjun síðari umr., en ekki í nokkru samhengi við þingsályktunartillöguna sjálfa sem kveður beinlínis á um að hér káfi upp á 21. gr. stjórnarskrárinnar.

Í annan stað langar mig til að grípa hér niður í texta úr ræðu hv. þm. Birgis Ármannssonar úr síðari umr. frá 15. maí 2019. Hann starfar sem þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og er þar af leiðandi vel inni í málum. Hv. þingmaður segir, með leyfi forseta:

„Sá lagalegi fyrirvari birtist í frágangi málsins. Lagalegur fyrirvari er ekki eitthvað sem maður finnur módel að í lögfræðilegri formálabók.“

Samt er það alveg skýrt tekið fram í regluverkinu, þ.e. í lögunum um samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, hvernig fyrirvara skuli komið að og hver skuli ákvarða hann og hvaða dagsetning gildi varðandi fyrirvarana. Ég myndi segja að þetta væri formálabók. Þess vegna, hæstv. forseti, skiptir máli að þeir þingmenn sem hafa haldið svona löguðu fram komi hingað, skýri orð sín og útskýri fyrir okkur hvað við erum að misskilja.