ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Mig langar til að halda áfram út frá því sem ég kom inn á áðan varðandi andsvar hv. þm. Birgis Ármannssonar við dr. Ólaf Ísleifsson, hv. þingmann, 15. maí sl. Ég held áfram að lesa beint upp úr andsvari hv. þingmanns, með leyfi forseta:
„Það liggur fyrir að með innleiðingu þessara reglugerða og ákvæða erum við að innleiða með hefðbundnum hætti.“ — með hefðbundnum hætti, sem þýðir að fullu — „Hins vegar liggur skýrt fyrir að sá meiri hluti þingsins sem mun afgreiða málið gerir þann fyrirvara varðandi lagaleg atriði í því að þau ákvæði sem varða tengingu milli landa, tengingu í gegnum sæstreng, komi til endurskoðunar og umfjöllunar og mats á stjórnskipulegum þáttum áður en að ákvarðanir um slíka tengingu verða lagðar fyrir.“
Í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar segir, með leyfi forseta:
„Íslenskur og norskur texti reglugerðar 713, 714, 715, samanber leiðréttingar sem birtust í Stjórnartíðindum ESB, sem verður birtur í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, telst fullgiltur.“
Ákvörðun þessi öðlast gildi 6. maí 2017 eða daginn eftir að síðasta tilkynning samkvæmt 1. mgr. 103. gr. EES-samningsins hefur farið fram eftir því hvor dagsetningin er síðari, þ.e. 6. maí eða undirritunin 5. maí 2017.
Orð hv. þingmanna þarfnast skýringar. Er ekki svo, hv. þingmaður?