149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[00:34]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti biður hv. þingmann innilega velvirðingar, hann rak hamarinn óvart í bjölluna en mjög mildilega. (ÞorS: Ég tók eftir því.) Ég tel að það hafi ekki komið verulega að sök en það var sem sagt ótímabært af hálfu hæstv. forseta svo að nam einum tveimur sekúndum.