ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég vil dvelja aðeins við það sem forseti sagði áðan um að alþingismönnum ýmsum sem við höfum kallað eftir þætti nóg sagt. Á sama hátt þykir okkur ekki nóg sagt og ég bið forseta virða það á sama hátt og hann biður okkur að virða það að ýmsir alþingismenn vilji ekki koma hingað til fundar við okkur vegna þess að þeir telji sig hafa sagt allt sem segja þarf. Komið hefur fram, bæði hér í kvöld og áður, að enn koma fram nýjar upplýsingar um þetta risastóra mál og við teljum að ekki megi kasta til höndunum við að afgreiða það, nógu illa er þetta mál sett fram að okkar mati. Þess vegna viljum við halda áfram að ræða það, vegna þess að í sífellu koma fram nýjar upplýsingar sem styrkja það sem við höfum haldið fram um þetta mál.