149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[00:45]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti hefur sýnt því ríkulegan skilning að hv. þingmenn, einkum hv. þingmenn Miðflokksins, hafa þurft að tjá sig mikið um þetta mál. Hann hefur mætt óskum þeirra um það með því að halda hér langa fundi og er enn að því og hlýtur að líta svo á að það sé í þökk hv. þingmanna Miðflokksins sem þurfa að tjá sig svo ríkulega sem raun ber vitni.

Forseti hefur vissulega lagt mikið á starfsfólk Alþingis með því, en þetta helgast og af þeim aðstæðum að nú lifa fáir starfsdagar Alþingis eftir og óhemjuverkefni bíða afgreiðslu mála. Eðlileg tilhögun dagskrár er að taka þetta mál og ræða það þegar það er komið úr nefnd. Má þá minna á að málið er afgreitt og mælt með samþykki þess af átta af níu nefndarmönnum í utanríkismálanefnd. Ætla má að á bak við það sé þar af leiðandi mikill stuðningur og lítill minni hluti getur ekki þvingað fram dagskrárvald og tekur það ekki af forseta Alþingis með ræðuhöldum hér.