ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Það er aðdáunarvert hvernig hv. þingmaður nær að greina þennan frumtexta og draga af honum rökréttar ályktanir. Það væri óskandi að sú mikla vinna sem hv. þingmaður hefur lagt í það hefði verið unnin af hálfu stjórnvalda áður en málið var lagt fram. Þetta er mjög upplýsandi og auðvitað enn eitt dæmið um mikilvægi þessarar umræðu. Það er rétt, sem hv. þingmaður segir, það er verið að taka upp Evrópulöggjöf og leiða hana inn í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, í þessu tilviki löggjöf frá árinu 2009 sem er búin að vera í notkun í Evrópusambandinu í tíu ár. Það er komin reynsla þar á hvað það þýðir að taka upp þessa löggjöf, og sérstaklega með tilliti til þess sem hv. þingmaður útskýrði fyrir okkur hér áðan um fulla innleiðingu er ekki hægt að horfa fram hjá því að hlutverk ACER, þessarar sameiginlegu orkustofnunar, verður mjög ríkt hér á landi. Það er í raun merkilegt að tiltölulega lítil umræða hefur farið fram um þá staðreynd.
Ég vildi fyrir vikið spyrja hv. þingmann hvort hann telji að innleiðing þessa regluverks breyti í grundvallaratriðum eðli Orkustofnunar, sem þá myndi lúta boðvaldi frá ACER. Það er ekki að ástæðulausu að ég spyr, herra forseti, því að stjórnarliðar, sumir hverjir, hafa leyft sér að halda því fram að þetta sé í raun sáralítil breyting.