ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi þetta er það svo að sé það raunverulegur vilji manna, sem mér sýnist vera, a.m.k. miðað við orðræðuna, vilja menn innleiða þriðja orkupakkann en vilja setja fyrirvara við það hvað hægt sé að ganga langt í valdframsali. Við viljum ráða auðlindunum áfram. Við viljum áfram ráða nýtingu. Við viljum hafa forræði áfram. Ef það er svo verð ég að segja að fullkominn samhljómur er í þessum sal, að fólk vill raunverulega taka skemmri skref en sem nemur fullri innleiðingu orkupakka þrjú. En ef á að gera það með þeim aðferðum sem hér er lýst þá verður það svo að hann verður innleiddur að fullu, regluverkið sem við ætluðum okkur að setja til að sporna við þessu sem ég nefndi áðan mun ekki halda og við munum verða ávítt fyrir það að við höfum innleitt á rangan hátt ef upp koma deilumál.
Því segi ég: Af hverju í ósköpunum er ekki hægt að setjast niður og rýna þetta betur? Hvernig í ósköpunum má það vera að virtustu fræðimenn komist að því að það sé leið sem sé lagalega trygg og ekki háð óvissu og hana sé hægt að fara? En við veljum hina leiðina. Er þá ekki bara heiðarlegra að segja: Við viljum ganga í Evrópusambandið?