ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Þetta er áhugaverð pæling og ég biðst afsökunar á því að ég náði ekki alveg inntakinu í spurningunni í fyrra andsvari.
Það má vel vera að fyrst um sinn verði það svo að menn horfi í gaupnir sér fyrir hádegi og sinni svo eftirlitsskyldum fyrir ESA eða vinni með öðrum landsbundnum eftirlitsyfirvöldum undir ESA. Það getur vel verið. En hitt veit ég að gagnvart EES og EFTA-ríkjunum fer ESA formlega með valdheimildirnar.
Með leyfi forseta, stendur í áliti þeirra fræðimanna sem mest hefur verið vísað til hér að samkvæmt reglugerðinni, m.a. er formlegt vald til að taka lagalega bindandi ákvarðanir varðandi grunnvirki yfir landamæri samkvæmt 8. gr. reglugerðarinnar lagt í hendur ESA.
ACER hefur eftir sem áður mikið að segja um efni þeirra ákvarðana sem ESA tekur á grundvelli reglugerðarinnar. Skulu ákvarðanir ESA þannig „teknar á grundvelli draga sem ACER semur.“ Það kemur því frá Evrópusambandinu til Eftirlitsstofnunar EFTA-ríkjanna að eigin frumkvæði eða að beiðni ESA. Ef þeir hjá ESA eru ekki alveg vissir um hvernig eigi að gera það, þá geta þeir beðið um það, annars kemur það bara að frumkvæði ACER. — Berist beiðni um endurskoðun ákvörðunar skal ESA senda slíka beiðni til ACER og skal ACER þá íhuga að semja ný drög fyrir ESA sem yrði svo sambærilegur grundvöllur að nýrri ákvörðun ESA.
Vakin er sérstök athygli á því að málsmeðferðin er aldrei öfug að þessu leyti, þ.e. að ESA semji drög að ákvörðun sem séu lögð til grundvallar af ACER. Áhrif ACER eru því meiri en ESA að þessu leyti.
Og (Forseti hringir.) tveggja stoða kerfið (Forseti hringir.) er að sjálfsögðu undir.