149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[01:30]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir ágæta ræðu. Ýmsir hafa lýst þessu aflátsbréfakerfi hvað varðar upprunavottanir fyrir hreina orku sem einhvers lags æfingabúðum sem orkukerfi hinna ýmsu þjóða eru í, í aðlögunarferli sínu að endanlegu markmiði orkustefnu Evrópusambandsins, þ.e. að öll orka sambandsins fari í einn pott sem síðan sé selt aftur úr.

Það var áhugavert að heyra þessa samantekt. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt þetta tekið saman með þessum hætti og sett fram eins og hv. þm. Karl Gauti Hjaltason gerði rétt í þessu. Það er greinilegt að verulegir fjárhagshagsmunir eru þarna undir, því að samkvæmt þeirri þekkingu sem ég hef á þessu kerfi eru ekki útgjöld orkufyrirtækjanna á móti þeim tekjum sem af þessu hafa hlotist hingað til. Segja má að það kerfi sem hefur verið að þróast og slípast núna undanfarið sé eins konar hvalreki fyrir orkufyrirtækin.

Mig langar að spyrja hv. þm. Karl Gauta Hjaltason hvort ég sé á einhverjum villigötum þegar ég lýsi þessari upplifun minni, að þarna séu í rauninni orkukerfi þjóða Evrópusambandsins í hálfgerðum aðlögunarbúðum eða æfingabúðum fyrir næsta skref í markmiði sambandsins, þ.e. að orkan fari öll í einn pott, að þarna sé búið (Forseti hringir.) að deyfa tilfinningu manna og fyrirtækja fyrir því hver (Forseti hringir.) raunverulegur uppruni orku er.