ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir spurninguna. Það sem ég hef og hafði áhuga á að vita varðar raforkuverðið. Ég á eftir að fara yfir það í næstu ræðu og kannski tekur það lengri tíma vegna þess að svarið er ítarlegt, þó að það sé kannski ekki mjög efnismikið miðað við það sem ég var að fiska eftir. En látum það nú vera. Ég á eftir að fara yfir þetta.
Það sem ég hafði mestan áhuga á varðar raforkuverðið. Hvaða áhrif hefur þetta á raforkuverðið til framtíðar? Ef orkufyrirtækin hér selja þessar upprunaábyrgðir og upprunaábyrgðir íslenskra stórfyrirtækja eru þá orðnar óhreinar á móti vegna þess að þeir eru búnir að selja frá sér hreinu upprunaábyrgðirnar þannig að íslensk fyrirtæki geta ekki sýnt fram á hreinan uppruna orkunotkunar sinnar, þannig að ef þeir eru í samkeppni við erlend stórfyrirtæki sem framleiða kannski sömu vöru, sem er ímyndað dæmi, kemur auðvitað að því að samkeppni þeirra verður lakari. Vegna hvers? Vegna þess að viðskiptavinir þeirra spyrja náttúrlega: Hvaðan færðu raforkuna þína? Ég fæ hana bara úr yndislegum vatnsföllum og hún er mjög hrein og hérna er vottorðið, gjörðu svo vel. Svo spyrja þeir íslensku aðilana: Hvaðan færð þú þína orku? Þá hafa þeir ekkert hreint vottorð til að sanna hvaðan orkan er upprunnin. Hvað þurfa þeir þá að gera, íslensku aðilarnir, sem eru í samkeppni við erlenda aðila, sem eru búnir að kaupa þetta upprunavottorð? Þeir þurfa auðvitað að kaupa það líka. Hvað þýðir það? Hækkun á raforkuverði. Er það ekki augljóst?
Ég mun fara nánar út í þetta í næstu ræðu. Það er af nógu að taka. Þetta er mjög áhugavert efni.