149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[01:35]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir andsvarið. Það má í sjálfu sér segja að kostnaður af þessu geti hvergi endað nema hjá viðskiptavinum orkufyrirtækjanna. Það er bara eins og með önnur útgjöld fyrirtækja í rekstri. Ég held að það hljóti að vera öllum ljóst. En að því sögðu þá hlýtur þetta að vera áhyggjuefni fyrir okkur Íslendinga sem vitum að öll orkuframleiðsla sem einhverju máli skiptir hér á Íslandi byggist á grundvelli endurnýjanlegrar orkuframleiðslu. Talað hefur verið um að hér sé framleitt umhverfisvænasta ál í heimi og þar fram eftir götunum.

Nú erum við í þeirri stöðu, með síaukinni áherslu á græn áhrif gagnvart framleiðslu fyrirtækja heimsins, að samkeppnisforskotið renni okkur svolítið úr greipum því að skyndilega verður t.d. álverið í Straumsvík, sem ég tek sem dæmi um af handahófi, allt í einu samkvæmt öllum vottorðum farið að framleiða ál með kjarnorku, kolum og öðrum meira mengandi orkugjöfum, í stað þess að framleiða grænasta ál í heimi, ef svo má segja. Þegar það verður orðin nýja línan er ég hræddur um að það samkeppnisforskot sem íslensk fyrirtæki hafa haft á grundvelli hinnar hreinu orku, (Forseti hringir.) muni fjara út. Hvernig horfir þetta gagnvart hv. þingmanni?