ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Hún var góð vegna þess að hún fékk mig til að hugsa og hugurinn reikaði. Ég veit hvernig mér hefur liðið í kringum þetta mál. Ég kom hingað inn sem varaþingmaður með skömmum fyrirvara og fram undan var að stinga sér beint í þetta orkupakkamál í fyrri umræðu, nota bene. Við Miðflokksmenn fengum leiðbeiningar og ráðgjöf frá sérfræðingum. Ég sat við borðið með félögum mínum og ég hugsaði: Jesús góður. Hvernig á maður að setja sig inn í þetta?
Ég get rétt ímyndað mér hvernig venjulegu fólki líður að reyna að setja sig inn í þetta mikla hagsmunamál. Þess vegna held ég að það sé að sjálfsögðu á ábyrgð stjórnvalda að kynna þetta á eðlilegan hátt þannig að það skiljist. Þótt gögn séu aðgengileg inni á vef Alþingis í gegnum nefndir eða einhverjar krækjur er erfitt að fara í gegnum það, erfitt að átta sig á því hvað tilheyri málinu, hver séu gögn málsins og hvort þau eigi við og að hve miklu leyti.
Það er því mjög erfitt fyrir venjulegt fólk, einhvern svona meðaljón eins og mig úti í bæ, að gera sér nákvæmlega grein fyrir því um hvað er rætt. Þess vegna er mjög einfalt að koma hingað, slengja því fram að þetta sé bara núll-mál, skipti engu máli, allt í toppstandi, keyrum þetta í gegn, svo bara tekur við næsta mál.
Það var kannski hreinlega verið að reyna það og er verið að reyna það. Eða hverjar eru vangaveltur þingmanns varðandi það? Var og er kannski verið að keyra á það að vonandi fatti fólk bara ekki hvað málið er illa reifað?