149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[01:50]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það er nefnilega svo að flestir þeirra sem sitja í þessum sal voru raunverulega búnir að kynna þetta á mjög einfaldan hátt fyrir fólki, og var kallað orkupakki þrjú. Hann snýst um yfirráð yfir auðlindum. Við höfnum honum. Það var búið að kynna málið af hálfu stjórnmálaflokka.

Fjölmargar blaðagreinar eru um það og viðtöl sem votta það að forystumenn stjórnarflokkanna voru nefnilega búnir að kynna þetta fyrir sínum flokki, fyrir sínu fólki, fyrir grasrótinni, sem akkúrat það sem þetta er. Menn voru búnir að kynna sér þetta og segja fólkinu: Um hvað snýst orkupakkinn? Þetta er bara Evrópusambandið að teygja sig ennú lengra en það hefur gert áður. Yfirráð yfir auðlindunum. Hvað gerum við í því? Heyrðu, hingað og ekki lengra. Þannig var búið að kynna þetta mál.

Það var ekki búið að kynna málið með þeim leiðindum sem ég er búinn að vera að standa í hér með því að lesa upp lagatexta og tilvitnanir í töluliði og málsgreinar, enda myndi enginn nenna að hlusta á það, ekki óvitlaus maður. En hitt er annað mál að búið var að kynna þetta mál á þessum forsendum.

Á þeim forsendum kaus fólkið.

Svo er hæstv. forseti hér í ræðustól og talar um að láta lýðræðið hafa sinn gang. Talað er til okkar Miðflokksmanna eins og við stöndum á móti lýðræðinu. Það voru lýðræðislegar kosningar í þessu landi og fólk kaus — ekki þetta. Fólkið kaus nefnilega ekki þetta.