ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég held að hv. þm. Birgir Þórarinsson hafi verið fjarstaddur hér fyrr í kvöld þegar ég beindi orðum mínum til hv. þm. Kolbeins Óttarssonar Proppés. Hann gerði ekki svo vel að koma hingað upp og útskýra fyrir okkur af hverju hann skipti svo rækilega um skoðun á 12 mánuðum eins og aðrir félagar hans í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði, sem gengið hafa svo nærri ágætum öðrum hv. fyrrverandi þingmanni flokksins, Ögmundi Jónassyni, að hann kallar flokkinn nú orðið hreyfinguna – framboð og segir: Það er ekki hægt að fara með allt hitt af því að þeir eru hvorki vinstri né grænir lengur. Þetta er eftir samrunann við Sjálfstæðisflokkinn sem ég hef lýst hér áður og þá náttúrlega týna menn flokknum sínum, eins og maður segir.
Ég vildi að ég vissi, hv. þingmaður, hvað hefur valdið þessum sinnaskiptum. Það eru reyndar einar tvær, þrjár, fjórar, tíu ástæður á bak við mig fyrir því. Að öðru leyti geri ég mér ekki algjörlega grein fyrir því hvað þetta er. Í tilfelli Vinstri grænna, hafa verið fluttar hér ræður, eins og ég hef sagt áður í þessari umræðu, t.d. í fyrri umr. af hálfu þingmanna Vinstri grænna, sem ég hélt að ég myndi ekki lifa að heyra. Það eru ræður sem hefðu getað sómt sér á upphafsdegi landsfundar Sjálfstæðisflokksins, á hverjum einasta degi. Svona er pólitíkin merkileg. Ég sé hins vegar enga skynsamlega ástæðu og enga ástæðu yfirleitt fyrir þessum sinnaskiptum sem gætu komið landi og þjóð vel. Það sé ég ekki. Ég sé svona tíu ástæður á bak við mig sem eru hugsanlegar. Í fljótu bragði sé ég ekki aðrar ástæður.