ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Já, ég get tekið undir þessa ályktun. Hún er rétt. Þetta er allt hluti af gangverki kerfisins, ef svo má segja, þar sem tannhjólin snúast alltaf bara í sömu áttina en ekki til baka. En þetta hefur reyndar verið rætt áður. Það var annar maður sem var búinn að lýsa sams konar áhyggjum og gerði það mjög skýrt og skilmerkilega fyrir rúmu ári, og það var formaður Sjálfstæðisflokksins, hæstv. fjármálaráðherra, sem í viðtali við breska blaðið Daily Telegraph og hér í ræðustól Alþingis orðaði hlutina á mjög sambærilegan hátt og hv. þingmaður og varaði við ásælni Evrópusambandsins í völd, ekki hvað síst og alveg sérstaklega í orkumálum. Tilefnið var þriðji orkupakkinn.
Þess vegna bind ég enn vonir við að stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins muni nú á afmælisdegi þess flokks leiða þingmenn flokksins í allan sanninn um það að kannski sé æskilegt í þessu máli, eins og fleirum, að fylgja því besta í stefnu flokksins, hlutum eins og sjálfstæðisstefnunni, þ.e. að standa vörð um sjálfstæði landsins.
Það sama má auðvitað segja um hina stjórnarflokkana. Þeir hafa í gegnum tíðina haft mjög sterkar þjóðlegar taugar og kunnað að meta mikilvægi fullveldisins. Ég vonast að sjálfsögðu til þess að stuðningsmenn þeirra flokka muni gera slíkt hið sama og beita sér fyrir því að þingmenn þeirra hverfi (Forseti hringir.) frá þessari óskiljanlegu ákvörðun um að ætla að innleiða þriðja orkupakka Evrópusambandsins.