149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:21]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég tel vera fullt tilefni til að stilla upp þessari sviðsmynd, þ.e. sviðsmyndinni eins og hún verður þegar og ef sæstrengur kæmi. Ástæðan er sú að orkupakkinn er til þess fallinn að ýta undir lagningu sæstrengs og þar af leiðandi er eðlilegt að skoða áhrif hans í ljósi þess, enda sjáum við að þeir sem gengið hafa hvað harðast fram í baráttunni fyrir sæstrengslagningu eru eindregnir stuðningsmenn þessa orkupakka. Nægir þar að nefna forstjóra Landsvirkjunar, sem hefur gert það að miklu forgangsverkefni þess fyrirtækis og talar nú mjög fyrir því að þriðji orkupakkinn verði innleiddur.

Það er líka ástæða til að hafa í huga, talandi um gangverk kerfisins, að það vinnur, að því er virðist, mjög ötullega að því að þessi sæstrengslagning eigi sér stað. Og með innleiðingu þriðja orkupakkans fá menn vopn í hendur til að ýta undir þá framkvæmd.

Þess má geta að þegar liggja fyrir mjög umfangsmiklar breytingar á þriðja orkupakkanum sem erfitt er að sjá að stjórnvöld ætli að standa gegn því að innleiða ef þau eru að innleiða þriðja orkupakkann, á þeim forsendum að hann sé eðlilegt framhald á því sem á undan kom. Þessar breytingar eru ekki hvað síst til þess ætlaðar að fyrrnefnd ACER-stofnun hafi vald til að knýja á um samtengingu milli ríkja og sérstaklega tekið fram að horft skuli til þess að tengja svokölluð einangruð svæði, þar með talið eyjar.

Ég tel, í ljósi þess sem komið hefur fram í umræðunni fram að þessu, fullt tilefni til þess (Forseti hringir.) að við förum að ræða málið út frá þeirri stöðu sem upp er komin þegar orkupakkinn hefur skilað þeirri niðurstöðu að Ísland er tengt með sæstreng.