149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:41]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það verður bara að segjast eins og er að þessi kenning hv. þingmanns hljómar býsna trúverðug. Það er auðvitað þannig að þegar orkupakkinn hefur verið innleiddur með hefðbundnum hætti, eins og orðalagið er í gögnum utanríkisráðuneytisins, þá er pakkinn, eins og hann stóð árið 2017, orðinn innleiddur í íslenskan rétt og þá fyrst verður staða fyrirvara Norðmanna veik, svo vægt sé til orða tekið. Ég held að þetta hljómi mjög líkindalega, að þarna sé Evrópusambandið að því gefnu að einhvern tímann verði einhver viðbrögð veitt við þessum einhliða fyrirvörum Norðmanna, að bíða eftir því að allir aðrir hafi klárað innleiðingu að fullu.

Þetta minnir mig á síðustu málsgrein fréttatilkynningar utanríkisráðuneytisins um sameiginlegan skilning EFTA-ríkjanna þar sem efnislega segir að fulltrúi Evrópusambandsins hafi lesið upp yfirlýsingu þess efnis að viðskipti ríkja sem væru þegar tengd með grunnvirkjum til flutnings raforku yfir landamæri væru í fullkomnu uppnámi yrði þriðji orkupakkinn ekki innleiddur hið snarasta á Íslandi. Ég held að þarna séum við og með ákveðnum hætti Norðmenn, með sína fyrirvara, að lenda inni í einstefnuloka Evrópusambandsins hvað þetta varðar.