ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég vonast til þess að hæstv. forseti hugi nú að þessu frábæra starfsfólki sem er hér í þinginu og taki upp skynsamlegri tímastjórnun. Ég hef áður bent á það að þó að stór mál hafi verið til umræðu í þingi og menn talið sig þurfa að ræða þau mikið höfum við ekki áður, ég held bara aldrei í sögu þingsins, haft forseta sem hefur nálgast málið með þeim hætti að reyna að fela umræðuna með því að láta hana helst fara fram um miðja nótt eða að morgni dags eða, ef kenning hv. þm. Bergþórs Ólasonar er rétt, að forseta detti í hug að þetta sé leiðin, að reyna að þreyta menn. Við Miðflokksmenn þreytumst ekki á því að tala um þetta mál sem varðar slíka grundvallarhagsmuni þjóðarinnar, enda hefur umræðan reynst okkur vel við að átta okkur betur á stöðu mála, en (Forseti hringir.) forseti getur tekið upp skynsamlegri tímastjórnun með tilliti til starfsfólks Alþingis.