149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:48]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég tek undir með þingmönnum sem hafa komið hingað upp og lýst því yfir að það sé áhyggjuefni hvernig farið er með starfsfólk Alþingis í þeirri umræðu sem farið hefur hér fram. Ég kveinka mér ekki, ég vann vaktavinnu til margra ára og finnst alveg ágætt að geta rætt svona mikilvægt mál fram í nóttina. Það hefur ekki áhrif á mig. En ég hef hins vegar áhyggjur af starfsfólki Alþingis, herra forseti, og ég vil bara vitna í formann eins stærsta verkalýðsfélagsins, VR, sem tjáði sig um þetta fyrir skömmu. Hann segir, með leyfi forseta, að hér á Alþingi séu „algjörlega óviðunandi og ómannúðlegar aðstæður, á vinnutíma sem varla getur talist boðlegur í nútímasamfélagi“. (Forseti hringir.) Þarf að bæta eitthvað við þetta, herra forseti? Ég held að það sé brýnt að hlusta á þessi orð. Þau eru svo sannarlega í tíma töluð.