149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:13]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að það sé öllum að verða ljóst að búið var að taka ákvörðun um þetta mál, hvernig skyldi vinna það og að það skyldi gerast hratt, með leiftursókn í gegnum þingið og koma því á áfangastað með fullri innleiðingu þriðja orkupakkans.

Ég vil ekki ætla starfsmönnum ráðuneytis það, sem framkvæma eða eiga alla vega að framkvæma vilja ráðherra, að hafa búið svo um hnútana að hér sé eitthvað annað að gerast en það sem lýsir vilja ráðherra. Og með dansar m.a. hæstv. forseti Alþingis sem virðist vera að vinna hér fyrir ráðherra eða stjórnarmeirihlutann og ætli að liðka til fyrir því að fremja stjórnarskrárbrot og keyra málið af hörku í gegn og að þeir fáu þingmenn sem standa í lappirnar gagnvart stjórnarskrárbroti, sem er yfirvofandi og er sérstaklega tiltekið í þingsályktunartillögunni að aflétting stjórnskipunarfyrirvarans varði við 21. gr. stjórnarskrárinnar — ég held að því sé gaumur gefandi sem hv. þingmaður gumar hér af, að hugsanlega sé verið að keyra mál í gegn í krafti valds. Einhver myndi skilja það sem svo að það væri kannski bara ofríki, eða kannski er hægt að nota orðið valdníðsla, (Forseti hringir.) þegar gengið er fram með þessum hætti.