149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:18]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinna andsvar. Ég held að það sé nefnilega svo og sé alveg rétt hjá hv. þingmanni að það hefur enginn mælt því mót að lagalega væri tryggt að þetta sé hin lögformlega rétta leið. Menn færast undan því að gefa heiðarlegt svar við þeirri spurningu af hverju menn séu svo fráhverfir þeirri leið sem við þingflokksmenn Miðflokksins höfum lagt til hér. Við því fást ekki svör önnur en pólitísk, einhverjar vangaveltur manna um að þetta geti valdið ólgu. Þetta gæti valdið því að okkur verði ýtt út úr samstarfinu um Evrópska efnahagssvæðið án þess að hafa einn einasta lagabókstaf til að rökstyðja mál sitt þegar menn tala með þeim hætti, ekki einn. Enginn hefur getað komið hér og lýst því. Það má vel vera að það valdi einhverri pólitískri ólgu. Ætli það hafi ekki verið einhver pólitísk ólga í kringum Icesave-málið? Eða þegar við höfum þurft að takast á við önnur ríki á alþjóðlegum vettvangi? Auðvitað verður pólitísk ólga sem fylgir því. En endanlega eru það lögin sem ráða.

Það sætir furðu hversu hart er sótt fram að fara leiðina sem vafi leikur á að geti staðist lög. Ég er reyndar þeirrar trúar, eftir að hafa kynnt mér gögn málsins, að ljóst sé að við erum að fara í þá vegferð að innleiða orkupakka þrjú án nokkurra fyrirvara.