149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:50]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Já, þetta er mjög fróðlegt og mikilvægt innlegg inn í umræðuna. Hvað gerist ef við vísum málinu til sameiginlegu EES-nefndarinnar? Það gerist náttúrlega ekki neitt. Það er málið. Þetta fer bara sína leið, sína lögformlegu leið, og hér fer ekki allt í uppnám. Hér fer enginn EES-samningur í uppnám vegna þess að hvergi í samningnum segir að hann fari í uppnám ef við veljum þessa leið sem við höfum.

Eitthvað hefur verið talað um neyðarrétt í þessu sambandi, að þetta eigi einungis að nota í neyðartilfellum. Það hefur enginn bent á það, nema þá sérfræðingurinn Baudenbacher, sem hefur þá búið það til. Ég held að það sé alveg ljóst, herra forseti, að ef einhver neyðartilvik væru þar sem hægt væri að vísa svona máli til sameiginlegu EES-nefndarinnar ætti það náttúrlega bara standa í samningnum. Það ætti þá að vera klásúla eða grein í samningnum sem segir að einungis sé heimilt að fara með mál fyrir nefndina í neyðartilfellum. Þá ætti náttúrlega að telja þau tilfelli upp og skýra það út hvað eru neyðartilfelli.

Í mínum huga er málflutningur stjórnarliða, um að hér fari allt í kaldakol og að við megum alls ekki nýta okkur þetta ákvæði, hreinlega hræðsluáróður. En stóra málið og kannski sýnu alvarlegast í þessu er hvers vegna verið er að halda uppi þeim hræðsluáróðri. Það þarf að koma í ljós og það þarf að skoða og ræða ofan í kjölinn.