ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Búið er að róta upp einhverju moldviðri um að okkur sé ekki heimilt — eða jú, að okkur sé heimilt að vísa þessum ágreiningi til sameiginlegu nefndarinnar, en þá fari allt í viftuna og að einhverjir ægilegir pólitískir núansar verði á því. En það held ég að verði ekki.
Þegar lengra kemur í 102. gr., þ.e. 4. mgr., segir, með leyfi forseta:
„Ef ekki er unnt að komast að samkomulagi um breytingar á viðauka við samning þennan, þrátt fyrir beitingu undanfarandi málsgreinar,“ — sem ég las upp áðan — „skal sameiginlega EES-nefndin kanna alla frekari möguleika á því að tryggja áframhaldandi góða framkvæmd samningsins og taka nauðsynlegar ákvarðanir þar að lútandi, meðal annars að viðurkenna að löggjöf sé sambærileg.“
Þegar maður les hvernig þetta fer fram og hvað gerist, og eins og hv. þingmaður sagði í stuttu máli þá gerist ekki neitt nema að málinu er vísað til þessarar sameiginlegu nefndar. Og nefndin hefur í tveimur skrefum skyldur til þess að koma á samkomulagi milli aðila.
Þegar við horfum á það, herra forseti, að hafna pakkanum og senda hann í þetta ferli — það er einn útbreiddur misskilningur, það er ekki verið að hafna honum þannig að við tökum hann ekki upp, það er verið að hafna honum, samkvæmt þessum tillögum, í núverandi mynd. Hann verður hins vegar tekinn upp í löggjöf okkar og hingað inn með lögformlegum fyrirvörum sem Evrópusambandið sjálft er búið að gera, (Forseti hringir.) þannig að ekki verði ágreiningur seinna meir út af einhverjum ónýtum fyrirvörum sem menn vita ekki einu sinni hvar eru.