149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[04:04]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Já, þetta eru viðskiptafélagar okkar. Því skyldum við taka upp á því að skilgreina þá nánast sem hættulega óvini? Því skyldum við fara að líta á þá sem ógn? Það er afskaplega sérkennilegt fyrir einhvern sem á í góðu viðskiptasambandi og byggir það samband á samningi sem gerir sérstaklega ráð fyrir því og hvetur til þess að menn leiði mál til lykta á þann hátt að allir geti vel við unað, eins og það er orðað, að taka frumkvæði í því að skilgreina þá aðila sem hættulega, einhverja sem eigi að hafa vald yfir okkur og ekki sé þorandi fyrir okkur að nýta ákvæði samningsins, þessi jákvæðu og í raun fallegu ákvæði. Það er afskaplega undarlegt.

En ég ætlaði að spyrja hv. þingmann út í það sem hann nefndi í svari sínu varðandi stjórnarskrána: Getur verið að eitthvert samhengi sé milli þeirra tilburða, eins vanbúinna og þeir nú eru, til að fresta því að taka ákvörðun um stjórnarskrárþáttinn? Getur verið að einhver tengsl séu milli þess og þess áhuga sem sumir hafa lýst á því að gera breytingar á stjórnarskrá og afnema svokallað fullveldisákvæði stjórnarskrárinnar? Getur verið að menn sjái fyrir sér að hægt sé að fresta því að taka afstöðu til stjórnarskráratriðisins, sem er reyndar ekki hægt? En getur verið að menn ímyndi sér að þeir geti frestað því þangað til búið verður að gera þær breytingar á stjórnarskránni að þetta sé ekki lengur vandamál?