149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[04:06]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég er næstum því viss um að þeir eru til sem hugsa einmitt á þessum nótum. En ég er mikið búinn að velta fyrir mér — þegar menn voru að setja saman pakkann, þ.e. þingsályktunartillöguna eins og hún kemur inn í þingið — þeim möguleika að endursenda pakkann í heilu lagi í EES-nefndina. Ég sé fyrir mér tvo menn á tali og þeir segja: Eigum við ekki bara að senda þennan pakka til baka? Hinn segir: Nei, það er svo mikið vesen. Evrópusambandið verður brjálað og þetta er svo erfitt. Þetta tekur svo langan tíma og það fer allt í viftuna og þetta verður eitthvað voðalega vont og eitthvað sem við viljum ekki gera. Annaðhvort eru menn að mikla þetta fyrir sér, nákvæmlega eins og menn mikluðu fyrir sér áhrifin síðast þegar við þurftum að standa í mikilli alþjóðlegri baráttu, eigum við ekki að orða það þannig. Þá voru menn líka logandi hræddir, skjálfandi í hnjánum út af einhverju og eiginlega hræddir við skuggann sinn.

Eftir því sem maður les meira og eftir því sem við höfum rætt þetta meira kemur í ljós að þessi ótti er ástæðulaus. Þó að þetta hafi aldrei verið gert áður. Hvað með það? Einhvern tímann hafa menn gert ráð fyrir því að sá dagur kynni að koma að nauðsynlegt yrði að gera þetta og sá dagur er einfaldlega kominn núna. Það er komin gerð sem meiri hluti þjóðarinnar vill ekki taka upp óbreytta. Hvers vegna þá ekki að vinna þær breytingar á henni að hægt (Forseti hringir.) sé að taka hana upp í íslenska löggjöf með sómasamlegum og lögmætum hætti?