149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[04:08]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M):

Herra forseti. Ég þarf að tala um vindmyllur. Þær eru nátengdar áformum um innleiðingu orkupakka þrjú, eins og við höfum séð nú þegar, bæði samkvæmt kenningunni og samkvæmt þeirri raun sem birtist í mjög skyndilegum áhuga á því að reisa vindmyllugarða víða um land.

En eru vindmyllur eins vænlegur kostur og margir, sem kalla sig umhverfisverndarsinna, virðast halda? Ég er ekki svo viss um að sú sé raunin, fyrir utan auðvitað þá sjónmengun sem stafar af slíkum fyrirbrigðum. Matt Ridley fræðimaður hefur til að mynda skrifað um þetta áhugaverða grein í tímaritið Spectator og lítur þar á og reiknar út raunveruleg áhrif vindmylluvæðingarinnar, sérstaklega með tilliti til loftslagsmála.

Miðað við hversu mikið er fjallað um vindmyllur, og nú hér á Íslandi líka, skyldi maður ætla að þær skiptu umtalsverðu máli í orkubúskap heimsins, a.m.k. Evrópu, enda hefur verið lögð gríðarleg áhersla á vindmylluvæðingu. Það er mjög stór þáttur í þessum orkuáformum Evrópusambandsins, sem þriðji pakkinn er auðvitað flaggskip fyrir, að stuðla að aukinni vindmylluvæðingu.

En hvað skila þær stórum hluta orkunnar? Hvað myndi hæstv. forseti halda, ef við rúnnum það af að næstu heilu tölu? Skyldu það vera 20%, 10%, 5%? Nei, herra forseti, 0%, ef við rúnnum það af skila vindmyllur 0,46% af orkuframleiðslunni. Meira að segja þó að við leggjum við sólarorkuna erum við enn undir 1%.

Megnið af því sem skilgreint hefur verið sem endurnýjanlegir orkugjafar í orkubúskap heimsins, þ.e. um 14% af orkuframleiðslunni, eða 3/4, er framleitt með bruna, reyndar ekki hvað síst á viði. En það hafa menn ákveðið að skilgreina sem endurnýjanlega orku af því að trén spretta aftur.

Orkuþörf heimsins eykst jafnt og þétt og þriðji orkupakkinn er hugsaður m.a. til þess að mæta aukinni orkuþörf Evrópusambandsins og gera það eins mikið og kostur er með endurnýjanlegum orkugjöfum, sem er að sjálfsögðu jákvætt markmið í sjálfu sér.

Orkuþörf heimsins vex um 2% á ári og hefur gert í um 40 ár, u.þ.b. 2% á ári. Ef við ætlum að svara þessum vexti með vindmyllum — ég nefni þetta vegna þess að menn hafa gert svo mikið úr möguleikanum á Íslandi sem vindmyllugarði sem sjái Evrópu fyrir orku — ef við ætlum að svara bara aukinni þörf fyrir orku á ári með vindmyllum eingöngu, þyrfti 350.000 stórar vindmyllur. Það er einu og hálfu sinni meira en allur sá fjöldi sem byggður hefur verið af þessum vindmyllum frá árinu 2000 þegar ríki, sérstaklega Evrópuríkin, tóku að styrkja slíka orkuframleiðslu. Færri en 350.000 vindmyllur þyrftu landsvæði sem er stærra en Bretlandseyjar í heild, stærra en stóra Bretland og Írland, bara til að mæta aukningunni fyrir eitt ár.

Hafðu í huga, herra forseti, að hér erum við bara að tala um aukninguna, breytingunni á milli ára. Til að mæta henni með vindmyllum eingöngu þyrftu þeir að leggja undir sig landsvæði sem væri stærra en Bretland og Írland samanlagt. Eins og sakir standa eru um 80% af orkuframleiðslu heimsins með bruna jarðefnaeldsneytis.

Herra forseti. Ég sé að tíminn líður sífellt hraðar og ég er rétt að hefja yfirferð mína um vindmyllur svoleiðis að ég verð að biðja um að vera settur aftur á mælendaskrá.