ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Varðandi vindmyllurnar hef ég verið að hugsa um hvort þær séu hentugur kostur hér á landi á einhverjum ákveðnum svæðum. Ég geri ráð fyrir að svo sé þar sem erlendir fjárfestar hafa sýnt því áhuga að koma þeim fyrir hér.
Það sem ég er fyrst og fremst að hugsa um er að við teljum okkur eiga nóg af logni sem er á hraðferð um landið. Það er vindasamt á Íslandi, en það getur verið kannski það mikið að raunverulega sé ekki hægt að starfrækja vindmyllur á þeim tímapunkti sem vindur fer yfir ákveðin mörk eftir, eftir því sem ég hef komist næst. Eins og ég segi hef ég ekki kynnt mér vindmyllur mjög vel.
En varðandi þessa vindorkugarða sem hér yrðu reistir sem erlendir fjárfestar, m.a. frá Noregi, hafa sýnt áhuga á að fá að reisa hér; á hvaða svæði væri það helst sem garðarnir myndu rísa á á landinu? Hefur hv. þingmaður kynnt sér hvernig þessir vindorkugarðar yrðu tengdir inn á flutningskerfi raforku og hversu mikil áhrif þeir myndu hafa? Skiptir miklu máli fyrir Íslendinga að geta reist vindorkugarða til að bæta inn orku á flutningskerfi raforku? Eða áhrifin sem eru neikvæð varðandi náttúru, sjónmengun, hljóðmengun o.s.frv.? Er búið að greina þessa hluti að einhverju leyti af hálfu ríkisins?