ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög áhugaverða ræðu. Ég tel að það hafi verið mjög vanmetið í þessari umræðu hvaða áhrif innleiðing orkupakka þrjú, tilskipunar Evrópusambandsins um sameiginlegan markað fyrir raforku, geti haft á þessa uppbyggingu vindmyllugarða. Ég er alveg sammála hv. þingmanni með það að það eru svæði á landinu sem henta vel fyrir vindmyllur og við eigum ekkert að útiloka þær sem slíkar. En það þarf að setja hér reglur og sveitarfélögin hafa t.d. kallað eftir því að settar verði reglur hvað þetta varðar. Við erum mjög aftarlega í þeim efnum en á sama tíma er greinilegt að fjárfestar hafa mjög mikinn áhuga á því að fara í þessa garða. Maður veltir því fyrir sér hvers vegna sá áhugi sé til staðar.
Hv. þingmaður lýsti því mjög vel að þetta eru gríðarleg mannvirki og gaman að sjá hvað hv. þingmaður hefur kynnt sér þetta vel. Þetta eru miklar fjárfestingar og til þess að fara í svona miklar fjárfestingar þarf arðsemin að vera mikil og góð. Menn þurfa að fá eitthvað fyrir þann pening sem þeir hafa lagt í þetta. Það gera þeir ekki eins og staðan er í dag vegna þess að markaðurinn hér er svo til mettur þegar kemur að raforkunni. Er þá ekki nokkuð augljóst, hv. þingmaður, að verið er að horfa til þess að selja þessa orku úr landi? Er það ekki það sem blasir við?