ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Það er eitt í þessu sem vekur undrun en það er það sem virðist vera áhugaleysi Vinstri grænna á þeim umhverfisáhrifum sem innleiðing orkupakkans opnar leið fyrir; hún opnar leið fyrir mun meiri uppbyggingu raforkuframleiðslu en verið hefur. Ég held að það sé alveg ljóst. Þess vegna hefði verið mjög fróðlegt að fá álit umhverfisráðherra á því hvað hann sjái fyrir sér í þessum efnum.
Við horfum til framtíðar og það er alveg ljóst að sæstrengurinn kemur. Hann kemur ekki á morgun ef þessi orkupakki yrði samþykktur í dag, en innan tiltölulega fárra ára, held ég að óhætt sé að fullyrða. Það hafa sérfræðingar sagt, t.d. sérfræðingar hjá Landsvirkjun og fleiri aðilar. Tækninni fleygir mjög fram í þessum efnum. Strengirnir eru orðnir ódýrari í framleiðslu. Þó að vissulega sé veruleg fjárfesting að leggja slíkan streng er staðan, loftslagsmálin o.s.frv., þannig að sú hreina orka sem við höfum hér verður æ eftirsóknarverðari. Þess vegna hefði maður talið að eðlilegt hefði verið að umhverfisráðherra hefði tekið þátt í þessari umræðu. Þá væri t.d. hægt að spyrja hann út í þessa hluti, hvort ekki séu vísbendingar um það og það verði niðurstaðan að aukning verði á raforkuframleiðslu. Og hvar erum við þá stödd með regluverkið eins og t.d. með vindmyllurnar? Ef hv. þingmaður gæti kannski komið aðeins inn á það hvort hann hefði ekki talið eðlilegt að umhverfisráðherra kæmi inn í þessa umræðu.