149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[04:29]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Hvað vindmyllurnar varðar er regluverkið augljóslega ekki tilbúið. Menn standa allt í einu frammi fyrir þessum gríðarlega áhuga á vindmyllugörðum og hafa augljóslega ekki átt von á honum, hafa kannski ekki gert sér grein fyrir tengslum innleiðingar þriðja orkupakkans við þann áhuga. Hvað varðar spurninguna um aðkomu hæstv. umhverfisráðherra sætir það náttúrlega furðu að ráðherra umhverfismála skuli ekki hafa blandað sér í þetta mál í ljósi þess að það er óhjákvæmilegt, ef markmiðið er að fara að selja út orku, að það hafi mjög umtalsverð umhverfisáhrif.

Þessi spurning hv. þingmanns veitir mér tækifæri til að svara spurningu hv. þm. Jóns Þórs Þorvaldssonar sem ég náði ekki að svara áðan, en hann spurði: Hvar verður þessum vindmyllum öllum komið fyrir, hvar á landinu? Þau verkefni sem við höfum séð nefnd til sögunnar nú þegar eru býsna víða um land en það hlýtur að vera svolítið þröngt um ef menn ætla að gera hálendið allt að þjóðgarði, og þá væntanlega ekki að fara að reisa vindmyllugarða þar. Þá er vindmyllunum ýtt nær byggð. Það er ekki síður falleg náttúra niðri í fjörðunum og á láglendi á Íslandi. Það er því mjög hæpið, þó að Ísland sé strjálbýlt land, að til verði það pláss sem þessi hugmynd um vindmyllur sem þriðju orkustoð landsins myndi kalla á.