149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[04:39]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið, sem á mjög vel við í kjölfar þeirrar ræðu sem ég hóf áðan og einnig í kjölfar ræðu hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem mælti hér á undan mér.

Varðandi spurningu hv. þingmanns um umhverfisáhrifin, sem er mjög góð: Hvers vegna á að gera þetta á Íslandi sem reynt hefur verið að markaðssetja sem hreint land, t.d. gagnvart ferðamönnum? Að við séum hér með hreint vatn, hreint loft, ósnerta náttúru, með hreina bústofna, ylrækt, hreina orku og jarðvarma til að kynda húsin okkar, og allt það. Af hverju hefur þetta ekki verið rætt? Ég held að ástæðan sé fyrir sú sama og vakti áhuga minn og varð kveikjan að þeirri ræðu sem ég ætlaði að flytja nú, að það er ekki stefna fyrir hendi og hún hentar ekki. Sú umræða hentar ekki þegar farið er af stað á þann hátt sem gert er hér og reynt að keyra málið í gegn í flýti, að fara að flækja það eitthvað með því að ræða um umhverfismál í sömu hendingu, vegna þess að umhverfismál eru flestöllum Íslendingum mjög hugleikin.

Hæstv. umhverfisráðherra hefur verið mjög áhugasamur um að vernda náttúru og jafnvel að ganga lengra en ég myndi persónulega vilja sjá, vegna þess að ég held að við eigum að nýta náttúruauðlindir en að við gerum það á ábyrgan hátt. En ég held að það sé ástæðan fyrir þessu. Svar mitt við spurningu þingmanns er að ástæðan er einfaldlega sú að stefnan er ekki til og hentar ekki í þessari umræðu.