149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[04:44]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið hið síðara. Jú, það má ljóst vera að of geyst hefur verið farið í að, hvað eigum við að segja, hvetja til fjárfestinga með orðum eða gjörðum, eða alla vega könnun fjárfestinga í þessum orkugeira. Hins vegar hefur ekki verið nógu myndarlega að því unnið að marka orkustefnu og marka umhverfisstefnu sem verður þá að kallast á við orkustefnuna líka.

Þess er skemmst að minnast að við vorum, alla vega til skamms tíma — ég er ekki alveg með það í kollinum hvort búið var að koma þjóðgörðunum okkar á forræði sama aðilans, það má vera en ég held að svo hafi ekki verið. Það er í hróplegu ósamræmi að við náum einhvern veginn ekki að einbeita okkur að þessum málum í fullri einlægni og eftirfylgni þannig að vel sé. Og á sama tíma er fólk að hraða sér um of í að samþykkja einhver risamál eins og orkupakka þrjú, í bullandi lagaóvissu, á þeirri forsendu að það sé svo mikil pólitísk óvissa sem fylgi því að gera hlutina vel. Það er hugmyndafræði sem er þess valdandi að mann setur hreinlega hljóðan þótt við séum búin að tala um þetta í á áttunda tug klukkustunda.