149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[04:58]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég hvet þann hæstv. forseta sem nú situr til að aðstoða okkur þingmenn við að útskýra fyrir forseta að það sé ekki endilega víst að hæstv. forseti hagi tímastjórnun þingsins eins og best verður á kosið. Mér virðist það vera farið að bitna á hinu góða starfsfólki Alþingis.

Það getur náttúrlega ekki gengið þannig fyrir sig að hæstv. forseti láti það bitna á starfsfólki Alþingis, í einhverri kappsemi sinni við það annaðhvort að reyna að þagga niður umræðu, láta hana fara fram í skjóli nætur eða jafnvel ef hæstv. forseta dettur í hug, að hann þreyti þingmenn Miðflokksins við að ræða málefni orkupakkans. Það hlýtur að vera hægt að halda á málum af meiri skynsemi.