ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég tek undir með hv. þingmönnum hér. Ég skil ekki alveg hvers vegna er ekki hægt að segja hvað fundur á að standa lengi. Ég get ágætlega verið hér fram undir morgun og fram undir hádegi, ef því er að skipta. Ég vann vaktavinnu í fjölda ára áður en ég kom hingað og kann ágætlega við að vinna sérstaklega á björtum sumarnóttum. En ég hef líka sinnt störfum þar sem skipulag er mjög gott og mikilvægt. Mér finnst vera mikið skipulagsleysi á þessum störfum í þinginu, að ekki skuli vera hægt að segja hvað fundurinn á að vera lengi. Er einhver leyndarhyggja á bak við það? Hvaða hugmyndafræði er á bak við það að geta ekki sagt að fundurinn verði til 6, 8, 9? Ég átta mig ekki alveg á því, hv. þingmaður, og hef reyndar aldrei skilið það frá því að ég kom á þing. Ég held að það sé mikil nauðsyn (Forseti hringir.) til að vinna bragarbót á því.