149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[05:02]
Horfa

Forseti (Willum Þór Þórsson):

Forseti getur tekið undir með hv. þingmönnum, það er vissulega álag á starfsfólki þingsins. En þetta er að einhverju marki samspil þess að hér eru margir hv. þingmenn sem vilja ræða málið út og ekki er mikill tími eftir af þinginu. Þá verður bara að nýta tímann eins og best verður á kosið.

Það eru fimm þingmenn á mælendaskrá og við erum hér, forseti og starfsfólk, til að mæta þeirri þörf, þannig að forseti hyggst halda áfram. Þannig er staðan.