149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[05:21]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni ræðuna. Ég var ánægður með það sem þingmaðurinn kom inn á varðandi það að það gæti alveg komið upp sú staða í framtíðinni að skynsamlegt gæti verið að skoða að héðan lægi sæstrengur til orkuflutnings. Framtíðina þekkjum við ekki í því samhengi.

Þá kom þingmaðurinn inn á að við ættum að nálgast það á eigin forsendum en ekki undir hatti ACER eða undir því eftirlitsvaldi sem þeirri stofnun verður úthlutað og hefur gagnvart þeim þjóðum sem innleiða þriðja orkupakkann.

Mig langar til að spyrja þingmanninn hvort það sé ekki rétt munað hjá mér að það séu ýmsar þjóðir sem selja nú orku til Evrópusambandsþjóðanna, ég nefni Þýskaland sem dæmi, sem ekki falla undir gildissvið ACER og eru ekki hluti af þessum samevrópska orkupakka.

Ég held að það skipti máli í stærri umræðu sem við eigum fram undan varðandi „hvað svo?“ að Íslandi tengdu. Hver er munurinn á sviðsmyndunum annars vegar að Ísland sé tengt á okkar forsendum, eins og þingmaðurinn orðaði það, án þess að falla undir ACER, samanborið við það að Ísland sé tengt með sæstreng og falli undir ACER á …

Forseti, er ég í ræðu? Ég hélt ég væri í andsvari, bara svo ég sé ekki að beina spurningu til hv. þingmanns. Ég veiti því nú athygli að klukkan … Já, er það ekki?

(Forseti (WÞÞ): Jú.)

Ég veitti því athygli að allt í einu átti ég þrjár mínútur og 16 sekúndur eftir.

(Forseti (WÞÞ): Það er duglega gefið.)

Ég veit það. Þú ert rausnarlegur.

(Forseti (WÞÞ): Forseti þakkar hv. þingmanni fyrir og áréttar að hv. þingmaður er í andsvari.)

Já, takk. Ég skal vera stuttorður. Ég sé að tíminn líður hratt núna þegar þrjár mínúturnar hurfu allt í einu.

Spurningin er þessi: Hefur þingmaðurinn myndað sér skoðun á samanburði þessara tveggja sviðsmynda og þekkir hann dæmi til þess að Evrópusambandsþjóðir kaupi orku framleidda í ríkjum sem ekki falla undir ACER?