149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[05:26]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni svarið. Þetta samspil orkupakkanna og þess hvað er handan við hornið, hvað bíður í fjórða orkupakkanum og þar fram eftir götunum, setur okkur í þá stöðu að mínu mati að óvissuþættirnir eru einfaldlega of margir til að réttlætanlegt sé að keyra málið áfram með þeim hætti sem nú er reynt að gera.

Mig langar til að spyrja þingmanninn hvort hann sjái fyrir sér hvaða áhrif þetta hafi á EES-samninginn. Töluvert hefur verið rætt að við séum að grafa undan EES-samningnum sem höfum efasemdir um innleiðinguna á þeim forsendum sem hún byggir á. Það er fjarri lagi að ég telji að það væri skynsamleg nálgun.

Mig langar til að inna hv. þingmann eftir sjónarmiðum hans um hver áhrifin verði á aðild Íslands að EES, ef áhyggjur okkar Miðflokksmanna raungerast, þótt ekki væri nema hluta. Telur þingmaðurinn að það muni setja þrýsting á EES-samninginn? Eða telur þingmaðurinn að það sé lítil áhætta á að slík staða komi upp?