149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[05:31]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Mig langar að ítreka og óska eftir að fá svar við spurningu sem lögð var fram þegar fundarstjórn var rædd fyrir ekki svo löngu síðan. Þetta er spurningin, mjög afmörkuð: Á grundvelli hvaða ákvörðunar er sá fundur sem nú er í gangi haldinn?

Þessa spurningu set ég fram í ljósi fréttar sem birtist á alþingisvefnum sl. miðvikudag þar sem segir:

„Forsætisnefnd ákvað í dag að gera þá breytingu á starfsáætlun Alþingis að þingfundir verði að afloknum nefndafundum fimmtudaginn 23. maí og föstudaginn 24. maí, en báðir þessir dagar voru ætlaðir til nefndafunda samkvæmt starfsáætlun. Miðað er við að þingfundur geti hafist síðdegis báða dagana.“

Nú er liðið að morgni laugardagsins 25. maí og því spyr ég: Á grundvelli hvaða ákvörðunar er sá fundur haldinn sem við tökum þátt í núna?