149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[05:34]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Það hlýtur að vera á ábyrgð hæstv. forseta að stýra fundum af ábyrgð og hafa þá að leiðarljósi framgang þingsins og ekki síst starfsfólks þingsins. Ef hugur forseta stendur til þess að hreyfa mál sem skipta máli ætla ég að minna á að Miðflokksmenn hafa margsinnis boðið upp á að önnur mál verði færð fram fyrir þetta. Það er líklegra að þau myndu ná að hreyfast eitthvað áfram frekar en þetta mál á meðan stjórnarliðar haga sér þannig að þeir lofa einu fyrir kosningar sem er algjörlega kristalklárt, snúast algjörlega í 180° í þingsal og í meðförum þessa máls en síðan er talað um að lýðræðið fái að hafa sinn gang. Kosningarnar voru lýðræðislegar, herra forseti, en nú hafa stjórnarflokkarnir ákveðið að ganga á bak sinna loforða.