149. löggjafarþing — 110. fundur, 25. maí 2019.
ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
777. mál
Virðulegur forseti. Það er stundum þannig að spurningar falla milli skips og bryggju og fást ekki svarað. Þess vegna vildi ég taka undir og vekja sérstaklega athygli á þessari spurningu hv. þm. Jóns Þórs Þorvaldssonar þar sem hann spyr hvort þetta sé nýja reglan og nýja viðmiðið, að sé þingmaður á mælendaskrá skuli fundi haldið áfram og það muni þá eiga við um önnur mál þingsins til þingloka.