149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[05:39]
Horfa

Forseti (Willum Þór Þórsson):

Forseti getur einungis ítrekað það sem hann sagði fyrr, hér er verið að mæta þeirri þörf að ræða þetta mál. Það er auðvitað ekkert hefðbundið við þessa umræðu. Við erum hér komin að starfslokum þingsins og fjöldamörg mál bíða umræðu. Það er verið að reyna að ná að klára að ræða þetta mál þannig að önnur mál sem bíða á dagskrá komist að.