149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[05:42]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Það er full ástæða til að árétta það og ítreka að þingmenn Miðflokksins hafa þráfaldlega boðið það að þessu máli yrði skotið aftan við umræðu um önnur mál og brýnni. Ég leyfi mér að vænta þess að hv. forsætisnefnd hafi meðtekið þau skilaboð því að þau eru alveg skýr. Það er alveg ljóst að hér eru mál sem þarf að taka fyrir. Hæstv. forseta sem nú gegnir þeim störfum er ljós sú nauðsyn sem er á að fjalla hér um fjármálaáætlun og önnur mikilvæg mál.

Hæstv. utanríkisráðherra leiddi með framgöngu sinni hér í gær það fyrst og fremst í ljós, ásamt með öðru, að það er ekkert sem liggur á í þessu máli og það mætti sem best (Forseti hringir.) frestast til haustsins eins og við höfum reyndar lagt til.