149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[05:49]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég get ekki annað en tekið undir það mat hv. þingmanns að þessi stutta heimsókn hæstv. utanríkisráðherra í gærkvöldi hafi verið einkar sérkennileg, svo að ekki sé sterkar að orði kveðið. Ég man raunar ekki eftir tilviki þar sem nokkur ráðherra hefur mætt í mál sem hann lagði upphaflega fram sjálfur og ber ábyrgð á, ég tala nú ekki um í svona stórt og umdeilt mál, og gengið fram með þeim hætti sem hæstv. utanríkisráðherra gerði hér í gærkvöldi. Hann byrjaði á því að endurflytja gömlu talpunktana sína um málið og bætti því svo reyndar við að öllum spurningum Miðflokksmanna hefði verið svarað á heimasíðu ráðuneytisins. Þar væru öll svörin aðgengileg. Það olli mér ekki bara vonbrigðum heldur nokkrum áhyggjum því að það sýndi mér fram á að ráðherrann hefði ekkert fylgst með umræðu um eigið mál. Þar að auki veldur það mér áhyggjum ef ráðherrann sjálfur reiðir sig á þessar upplýsingar ráðuneytisins og telur þær fullnægjandi rök fyrir því að þingið klári þetta mál hér.

Það var eitt, af því að hv. þingmaður nefndi þessa sérkennilegu heimsókn, sem mig langaði að spyrja hann út í, sérstaklega varðandi málflutning ráðherrans, þ.e. samsæriskenningar hans, held ég megi kalla, um Norðmenn og einhver dularfull norsk áhrif. Ekki var annað að heyra á hæstv. ráðherra en að þetta mál og efasemdir um það á Íslandi væri allt runnið undan rótum einhverra norskra samtaka og norska Miðflokksins.